Digital Dugnad

Vefurinn er ein af stórkostlegustu uppfinningum mannkyns: öllum opinn, hannaður fyrir upplifun og tjáningu.

Sá vefur er enn til. En hann er bara grafinn undir einhverju miður skemmtilegu.

Það sem átti að vera opið, samnýtt rými er orðið að gróðamaskínu fyrir fáeina auðjöfra sem nærast á gögnunum okkar. Tæknirisarnir herja á vefinn eins og stafrænt illgresi og eru að eyðileggja vefinn sem við eitt sinn elskuðum.

Það er kominn tími til að bregðast við. Það er kominn tími á dugnad.

Hvað í fjáranum er dugnad? Og hvernig getur dugnad bjargað vefnum?

Dugnad er gamalgróið norskt hugtak. Það vísar til þess að fólk kemur saman og hjálpast að þegar verkefnið er yfirþyrmandi. Til dæmis þegar fólkið í blokkinni gerir sameiginlegt átak í að taka til á lóðinni og allir leggja hönd á plóg.

Það er dugnad.

Hugtakið er norskt en vandamálið sem við erum að leysa er hnattrænt. Allt of margir reiða sig á þjónustur tæknirisanna sem misnota gögnin okkar og drottna yfir stafrænu lífi okkar. Það er kominn tími til að taka höndum saman og reyta stafrænt illgresi.

Taktu þátt í dugnad og hjálpaðu til við að endurheimta vefinn.

Hvað getum við gert?

Fyrsta skref: hvað getur þú gert?

Að taka aftur stjórn á stafrænu lífi sínu eru engin geimvísindi. Nokkrar einfaldar breytingar duga til að breyta gríðarlega miklu, bæði fyrir þig og fyrir hinn opna og frjálsa vef.

  • Skiptu um vafra
  • Skiptu um leitarvél
  • Færðu tölvupóstinn þinn
  • Vistaðu skrárnar þínar annars staðar

Hver breyting tekur fáeinar mínútur. Hver þeirra skiptir máli.

Annað skref: Taktu einhvern með þér.

Um leið breytist dugnad í eitthvað miklu stærra. Nágranni þinn, afi þinn, tannlæknirinn þinn, bifvélavirkinn þinn, yfirmaður þinn. Allir þurfa þeir á hjálp þinni að halda. Það gerir þig að mikilvægustu manneskjunni í stafrænu lífi þeirra.

Hjálpaðu einni manneskju úr klóm tæknirisanna. Þannig kemst hreyfing á hlutina.

Halaðu niður og deildu með vinum þínum!

Hverjir standa á bak við átakið?

Vivaldi Technologies er hugbúnaðarfyrirtæki í eigu starfsmanna með aðsetur í Ósló og Reykjavík. Við erum að smíða Vivaldi vafrann fyrir notendur sem vilja vera við stjórn, fá raunverulega gagnavernd og vafra sem virkar eins og þeir vilja. Við rekjum ekki ferðir notenda á vefnum, né seljum gögnin þeirra.

Proton er svissneskt tæknifyrirtæki sem býður meðal annars upp á tölvupóst, VPN og skýjageymslu. Proton Foundation er sjálfseignarstofnun sem hefur persónuvernd að leiðarljósi.